Sunnudagur 8. mars, 2026
1.7 C
Reykjavik

Íslendingur grunaður um nauðgun í Hollandi: Tvisvar dæmdur fyrir nauðganir og of­beldi á Ís­landi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ís­lenskur karl­maður á fimm­tugs­aldri er grunaður um að hafa nauðgað og frelsis­svipt íslenska konu í Hollandi í síðustu viku.

Fréttablaðið fjallar um málið í dag. „Við getum stað­fest að lög­reglan sé með til rann­sóknar of­beldis­mál vegna at­viks sem átti sér stað í Hollandi. Ekkert meira en það,“ hefur Fréttablaðið eftir Ævari Pálma Pálma­syni, yfir­manni kyn­ferðis­brota­deildar lög­reglunnar. Í­trekar hann að kyn­ferðis­brota­deildin tjáir sig ekki um ein­stök mál.

Meintur gerandi hefur, sam­kvæmt heimildum Frétta­blaðsins tvisvar sinnum verið dæmdur fyrir nauðganir og of­beldi á Ís­landi, síðast árið 2018 þegar hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun. Ef miðað við al­menna dóma­fram­kvæmd má segja að fjögurra ára fangelsi sé afar þungur dómur og því ljóst að um mjög al­var­legt brot hefur verið að ræða.

Samkvæmt Fréttablaðinu er lögreglan í Amsterdam að reyna að hafa upp á manninum. Brotaþolinn gaf skýrslu hjá lögreglunni í Hollandi í liðinni viku og svo aftur hjá íslensku lögreglunni en hún er nú komin til Íslands. Ekki er lokum fyrir því skotið að málið verði útkljáð fyrir íslenskum dómstólum þar sem bæði meintur gerandi og brotaþoli eru Íslendingar.

Fréttablaðið hefur eftir Karli Steinari Valssyni, yfirlögregluþjóni alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra, að yfirleitt sé alþjóðasviðið þjónustuaðili við lögreglu erlendis en þá þarf hin erlenda lögregla að óska eftir aðstoð. Verði alþjóðleg handtökuskipun gefin út gæti alþjóðasviðið þó komið að málinu.

 

- Auglýsing -

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -