Í ár er liðin hvorki meira né minna en 35 ár frá því ákveðið var að eyjan í Atlantshafinu girti sig í brók og tæki þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Júróvisjón. Landinn hafði fengið að fylgjast með keppninni í nokkur ár, þó ekki í beinni útsendingu heldur viku eða tveimur seinna, og haft góða skemmtun af. Jafnvel þótt allir vissu hvernig keppnin hefðu farið.
Allir á yfirsnúningi
Árið 1985 sótti Ríkisútvarpið formlega um þátttökurétt í keppninni og var hann fúslega veittur. Nú var Ísland loks komið í hóp stórþjóðanna og vorum við þess fullviss að við gæfum þeim ekkert eftir á tónlistarsviðinu. Í byrjun desember var auglýst eftir lögum sem framlagi í okkar fyrstu Júrósvisjónferð en keppnin var haldin hjá frændum okkarí Noregi það árið. Bárust tæplega þrjúhundruð stykki og af þeim voru tíu lög valin til þátttöku í undanúrslitakeppninni hér heima fyrri part árs 1986.
Þjóðin var á yfirsnúningi af spennu og ekki kjaft að sjá á götum borgarinnar þegar bein útsending um val framlags Íslendinga stóð yfir. Í þokkabót hafði norski dúettinn Bobbysocks heiðrað landann með nærveru sinni og söng sigurlag ársins áður, La det swinge, í sjónvarpssal.
Það er skondið að renna yfir flytjendur laganna tíu sem flutt voru því telja mætti að skortur á söngvurum hefði hrjáð landið á þessum tíma. Björgvin Halldórsson flutti þrjú laganna, Eiríkur Hauksson önnur þrjú, Pálmi Gunnarsson enn önnur þrjú og Erna Gunnarsdóttir……auðvitað þrjú. Fyrir þá sem finnst stærðfræðin ekki ganga upp þá voru einhver laganna dúettar.
Svo fór að lagið Gleðibankinn eftir Magnús Eiríkssonar og útsetningu Þóris Baldurssonar landaði sigri í flutningi Pálma Gunnarssonar.
Magnús ósáttur
Magnús hafði upphaflega samið lagið fyrir Mannakornsplötuna Bræðrbandalagið með Pálma í huga sem söngvara. Öll völd voru hinsvegar tekin af Magnúsi þegar lagið vann og var Gunnar Þórðarson fenginn til að breyta útsetningu þannig að rokkuðum slagara var breytt í diskósmell. Einnig var ákveðið að fjölga í hópi flytjenda og var þungavigtarfólkið Eiríkur Hauksson og Helga Möller kölluð til að flytja lagið með Pálma. Eftir nokkrar vangaveltur var tríóinu valið nafni „Icy”. Nema hvað.
Magnús fór aldrei í grafgötur með að hann væri ósáttur við diskóskotnu útgáfuna sem síðar var send út auk þess sem fjölgun söngvara var aldrei borin undir hann. Ásamt Pálma mótmæltu þeir breytingunum en var þá hótað að lagið yrði dæmt úr keppni á þeim forsendum að það hefði borist of seint. Magnús kom þá ekki nálægt laginu meira og sat til að mynda heima þegar ný útgáfa lagsins var tekin upp í London. Hann fór þó með til Noregs með hópnum þegar að keppni kom.
Engu til sparað
Íslendingar stóðu á öndinni af spenningi og Gleðibankinn toppaði alla vinsældalista hérlendis. Hér var augljóslega komið næsta sigurlag Júrósvisjón. Ekkert var til sparað að gera veg Íslands sem mestan í þessari fyrstu keppni sem var nokkuð augljóst að við myndum vinna. Gert var myndband sem tekið var í Svartsengi, þar sem nú er að finna Bláa lónið, og var það dýrasta myndband sem þá hafði verið gert á Íslandi. Dóra Einarssdóttir, tískugúrú, var fengin til að hanna hina ógleymanlegu búninga sem tríóið skartaði og Sóley Jóhannsdóttir, danskennari, tók þremenningana í danskennslu. Það ku hafa reynst Pálma og Eiriki nokkuð erfitt enda ekki þekktir fyrir að vera kunnáttumenn á sviði dansfærni.

Þegar til Noregs var komið vöktu Íslendingarnir athygli enda þeirra fyrsta tilraun í kepninni. Hópnum fylgdi hjörð blaðamanna sem duttu hver um annan við að flytja fréttir af gríðarlegum vinsældum Icy hópsins. Í þokkabót reyndist Gleðibankinn koma býsna vel út í veðbönkum.
Vonbrigði með allt annað en fyrsta sætið
Sigurinn var allt að því í höfn og heimfrægð Icy hópsins sýndist trygg. Hófust þá miklar rökræður um hvar Ísland myndi halda keppnina að ári, hvort Laugardalshöllin myndi duga eða hvort við þyrftum að leita til nágrannaþjóða um aðstoð. Þessi umræða fór fram í fullri alvöru, svo sigurviss var landinn.
Í upprifjun á vef Glatkistunnar segir: „Magnús Örn Antonsson þáverandi útvarpsstjóri sagði á blaðamannafundi að þetta væri eitt það besta tækifæri sem þjóðin gæti fengið til að sýna að hún stæði jafnfætis öðrum þjóðum, Eiríkur Hauksson spáði Gleðibankanum fimmta til áttunda sæti í keppninni og þótti fremur svartsýnn og poppskríbentar dagblaðanna fóru hreinlega á kostum í umfjöllun sinni. Einn þeirra sagði „að vel athuguðu máli“ að lagið ætti í raun mjög góða möguleika á efsta sætinu, um leið og hann gagnrýndi lög og myndbönd hinna þjóðanna með hæfilegum hroka og kaldhæðni, annar skrifaði í fullri alvöru: „Ef við náum ekki fyrsta sætinu verða vonbrigðin mikil.“
Saga sextánda sætisins hefst
Þann 3. maí sat íslenska þjóðin límd við skjáinn þegar tríóið steig á sviðið í Bergen. Þau stóðu sig með prýði en þegar stigagjöf hófst var nokkuð ljóst að Ísland var langt því frá að fara að vinna Júróvisjón það árið. Það var því þjóðinni mikið áfall þegar að lagið landaði aðeins aðeins sextánda sætinu af tuttugu, sæti sem íslensk Júróvisjónlög áttu eftir að eigna sér í gegnum komandi ár.
Gleðibankinn var gjaldþrota.
Fólk var svekkt og sárt. Og reitt. Reiðin beindist að norsku hljómsveitinni sem hafði spilað undir (ömurlega), að hinum Norðurlandaþjóðunum sem hefði svikið okkur með að gefa okkur ekki 12 stig (glatað, við gáfum þeim fullt hús), búningunum (of framúrstefnulegir) og Júrovisjón keppninni almennt sem væri gamaldags og kynni ekki að meta nútímalega snilld á við Gleðibankann. Einnig var fast skotið á hina 14 ára gömlu Söndru Kim sem hafði unnið keppnina og höfðu sumir á orði að svo erfitt væri að keppa við 14 ára krúsidúllu að Ísland ætti næst að senda kasólétta konu.
Með hlýju í hjarta
Á vef Glatkistunnar segir að engin hafi móttökuathöfnin verið þegar heim var komið eftir sneypförina til Noregs og þegar tríóið fór sveitaballarúnt um sumarð var hann fljótlega blásinn af vegna lélegrar aðsóknar. „Engin breiðskífa leit heldur dagsins ljós eins og gert hafði verið ráð fyrir og flestir reyndu að gleyma Gleðibankanum. Í árslok stóð útvarpsstöðin Bylgjan fyrir vali á leiðinlegustu lögum ársins og sigraði Gleðibankinn auðvitað þá keppni.”
Með árunum hefur fólk mildast mjög í afstöðu sinni til Gleðibankans og í dag minnast flestir lagsins með hlýju í hjarta. Fjölmargar útgáfur hafa verið gerðar af því í gegnum tíðina og raula flestir með þegar „Þú leggur ekki inn í gleðibankann tóman blús,” hljómar á öldum ljósvakans.

