Hin þekkta leikkona og sjónvarpskona, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, eignaðist sitt fyrsta barn – hraustan og fallegan son – í byrjun mánaðarins.
„Litli draumadrengurinn minn fæddist 5. júlí og ég gæti ekki verið hamingjusamari,“ segir Ísgerður í færslu.
Ísgerður er einhleyp en lét það ekki stoppa sig í að eignast barn – sem er hið besta mál – hún fór í glasafrjóvgun og er að springa úr hamingju og ást og segir þetta:
„Fjölskyldur eru alls konar og mín sem sagt byrjar bara á okkur tveimur; og svo sjáum við til hvort fleiri bætist við síðar,“ sagði Ísgerður þegar hún greindi frá því að hún væri með barni.

Ísgerður er ekki bara glæsileg og frábær leikkona og sjónvarpskona, heldur er hún líka slyngur tónlistarmaður; Ísgerður er dugnaðarforkur sem getur tekist á við margskonar verkefni og leyst þau með stæl, eins og myndirnar við fréttina bera með sér sem og þessi orð hennar sem hún lét frá sér rétt fyrir fæðingu sonarins:

„Í dag á ég 540 daga að baki af daglegri hreyfingu að lágmarki hálftíma á dag. Þar af 277 daga meðganga. Þegar ég varð ólétt ákvað ég að sjá hvað ég gæti haldið þetta út lengi og nú þegar örfáir dagar eru eftir í að litli strákurinn minn mæti verð ég að segja að ég er bara nokkuð ánægð með að hafa haldið áfram. Það er vissulega fyndið að æfa daglega og verða lélegri með hverjum degi en ég er mjög löglega afsökuð fyrir því og skammast mín alls ekki fyrir! Upphaflegt 100 daga markmið sem varð að einu og hálfu ári er jú bara aldeilis ágætt.“

Mannlíf óskar Ísgerði til hamingju með litla fallega drenginn.

