Sækja þurfti veiðimann með þyrlu Landhelgisgæslunnar í nótt en maðurinn fékk brjóstverk meðan hann var á hreindýraveiðum með þremur félögum sínum.
Mennirnir voru staddir í Sandvík milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í nótt og treysti maðurinn sér ekki til að ganga lengra vegna brjóstverkja. Ákveðið var af björgunarsveitarfólki að kalla til þyrlu frekar en að bera manninn á sjúkrabörum en svæðið er óaðgengilegt fyrir ökutæki.
Maðurinn var sóttur rétt fyrir þrjú í nótt og fluttur á sjúkrahús í Neskaupstað en RÚV greindi frá málinu. Ekki er vitað um líðan mannsins að svo stöddu.
Veiðimaður fluttur á sjúkrahús í nótt

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
