Föstudagur 8. maí, 2026
4.8 C
Reykjavik

Uppfæra áhættumat fyrir Ísland vegna mögulegrar NATO-aðildar Finna

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Saga þeirra er mjög lituð af þessum nánu samskiptum við nágrannana í austri. Þá er þetta mjög mikil umskipti sem hafa orðið í samfélagsumræðunni, en það virðist vera mjög eindreginn vilji ef marka má skoðanakannanir sem ítrekað hafa verið gerðar á undanförnum vikum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra í samtali við Fréttastofu RÚV.

Finnska þingið mun í dag hefja umræður um hvort sækja beri um aðild að  Atlantshafsbandalaginu. Undanfarna áratugi hefur fylgi í Finnlandi við aðild þeirra að bandalaginu verið á bilinu 20 til 30 prósent, en fór yfir 60 prósent í skoðanakönnunum eftir innrás Rússa í Úkraínu.

Katrín var sjálf í Finnlandi á dögunum og fundaði meðal annars með Sönnu Marin, forsætisráðherra Finna. Katrín segir ljóst að mjög róttækar breytingar séu að eiga sér stað í þjóðfélagsumræðunni í Finnlandi.

Katrín segir að íslensk stjórnvöld muni standa með ákvörðunum Finna og Svía varðandi mögulega aðild að bandalaginu. Þjóðaröryggisráð vinnur nú að uppfærslu á áhættumati fyrir Ísland.

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -