- Auglýsing -
Svarta labradortíkin sem féll í Hafravatn 12 mars og stíft var leitað að er fundin.
Sandra Ósk Jóhannsdóttir sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu, tilkynnti þessa sorgarfrétt á Twitter í gær.
„Tíkin sem féll í Hafravatn þann 12. mars er fundin, því miður ekki á lífi. Það var á mánudaginn sem að sjálfboðaliði með dróna fann elsku hundinn í Hafravatni þar sem áin endar. Eigendur hafa verið látnir vita og búið er að ná henni uppúr vatninu. Samúðarkveðjur til eigenda.“
Mannlíf sendir eigendum hundsins samúðarkveðjur.

