Söngkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir þakkar alla þá hlýju strauma sem henni hafa verið sendir undanfarið eftira ð ungur sonur hennar veiktist og lá inni á Barnaspítala Hringsins. Hún segir upplifunina hafa verið það erfiðasta sem foreldrahjartað hennar hafi upplifað.
Þórunn Antonía greinir frá veikindunum og upplifun sinni sem foreldri vegna veikinda barna sinna í einlægri færslu á Instagram:
„Stundum gerast atburðir sem hrista svo upp í tilveru manns að það er eins og flúor ljósum sé beint á það eina sem skiptir raunverulegu máli. Þau augnablik hafa verið nokkur í mínu lífu. Ég held að flestir foreldrar geti verið sammála um að þegar börnin manns veikjast og eru hætt komin er það erfiðasta sem foreldra hjartað upplifir,“ segir Þórunn Antonía og heldur áfram:
„Allar varnir fara þú verður svo ógurkega bjargarlaus. Barnið sem ég bar og nærði á mínu brjósti andar ekki án súrefnis. Rs vírus og lungnabólga. Hann er á batavegi en þegar innsæið henti mér af stað var súrefnis mettun hans aðeins 80%..Blíði glaði strákurinn minn er búin að liggja i viku.“
Þórunn segir son sinn vera að braggast enda séu þau í góðum höndum starfsfólks barnaspítalans.
„Elsku foreldrar með langveik börn og litlu hetjurnar ykkar…ég ber ómælda virðingu fyrir ykkur og aukinn skilning þó ekki bara agnar ögn inn í ykkar heim og sendi ykkur endalaust ljós. Þið sem eruð að kyssa börnin ykkar góða nótt rétt í þessu. Takiði örlítið lengri tíma. Knúsið þau extra mikið og gefið þeim það mikilvægasta nánd og óskerta athygli og blíðu. Takk allir sem hafa sent okkur góða strauma. Þeir skipta máli og ég finn alla ástina.“
View this post on Instagram

