„Freyja fór frá okkur allt of snemma og hún skilur eftir sig tómarúm í hjarta okkar. Þögn, þar sem alltaf mátti heyra lopputak, kyrrð þar sem alltaf mátti búast við fagnaðarlátum. Sorg þar sem alltaf mátti finna til gleði með henni.“

Þessi hlýju orð má finna í færslu þingkonunnar Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingmanns Pírata, þar sem hún kveður hundinn sinn, Freyju Forynju, sem varð bráðkvödd á heimili hennar um helgina, aðeins eins og hálfs árs gömul.
„Elsku hjartans hundurinn okkar, orkuboltinn og gleðigjafinn Freyja Forynja er farin frá okkur. Freyja elskaði fólkið sitt afar heitt og það fundum við öll sem fengum að fylgja henni í gegnum lífið. Freyja hafði mikla ástríðu fyrir því að veiða snjó, fjúkandi laufblöð og hvers kyns ljós eða skugga. Freyja elskaði egg og nautahakk og hreinlega allt sem við fjölskyldan vorum að borða,“ segir Þórhildur í afar hjartnæmri kveðju sinni.

