Steingrímur J. Sigfússon, fyrrum þingmaður og ráðherra Vinstri grænna, fékk tæpar 700 þúsund krónur greidda frá Alþiingi í septembermánuði þrátt fyrir að vera ekki í framboði til þings. Greiðslurnar voru fyrir flug, gistingu, fæði og dagpeninga. Vísir greindi frá.
Í september voru greiddar alls 1.6 milljónir króna til þingmanna sem ekki voru í framboði til Alþingis. Steingrímur fékk mest en á eftir honum kemur Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, sem fékk samtals rúmar 420 þúsund krónur.
Sigríður Á. Andersson, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kemur næst í röðinni en greiðslur til hennar í september námu ríflega 220 þúsund krónum. Hún fékk greitt vegna flugferða erlendis og dagpeninga.
Í fjórða og fimmta sæti listanst sitja Guðjón S. Brjánsson, fráfarandi þingmaður Samfylkingarinnar, sem fékk 112.745 krónur greiddar og Þorsteinn Sæmundsson, fyrrum þingmaður Miðflokksins, sem fékk 80.000 krónur í símastyrk.

