Fimmtudagur 14. maí, 2026
4 C
Reykjavik

„Það eru engir femínistar á Spáni“: Höfundur athugasemdar um Lenyu – „í rúminu“ – krafinn svara

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mannlíf fer nú af stað með reglulega liðinn „Kommentin krufin“. Þar verða kimar athugasemdakerfisins skoðaðir og athugasemdir kannaðar sem vakið hafa mikla athygli eða þykja umdeildar, tilurð þeirra og hvað fyrir höfundum þeirra vakti.

Samfélagsmiðlar skipa æ stærri sess í samfélaginu og vægi þeirra hefur aukist að sama skapi. Athugasemdakerfi fréttamiðla hafa löngum verið alræmdir forarpyttir þar sem öllu er slengt fram; fordómum, sleggjudómum og almennum dónaskap, svo eitthvað sé nefnt.

Facebook og Twitter eru hvað vinsælastir samfélagsmiðla hvað þetta varðar.

Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, birti nýverið skilaboð sem karlmaður lét falla um hana í athugasemdakerfi á Facebook. Þar skrifar Facebook-notandinn Steinar Harðarson að Lenya Rún sé villt. Jósep Þorbjörnsson bætir þá við: „Í rúminu“.

Umrædd athugasemd. Skjáskot: Twitter.

Mannlíf hafði samband við Jósep, sem áður var eigandi skemmtistaðarins Traffic í Reykjanesbæ, og spurði hann hvað fyrir honum hefði vakið þegar hann skrifaði athugasemdina.

„Þetta var bara grín hjá mér. Ég þekki hana ekkert og veit ekki hver þetta er einu sinni.“

- Auglýsing -

Inntur frekar eftir því hvað vaki fyrir honum við skrif athugasemda af þessu tagi ítrekaði hann að um grín hefði verið að ræða. „Hann skrifaði „hún er villt“ – þá bætti ég bara þessu við.“

Aðspurður hvort honum þætti athugasemdin viðeigandi sagði hann að hún væri einfalt grín. „Eru allir femínistar á Íslandi orðnir svona… er allt orðið svona slæmt á Íslandi, eða?“

 

- Auglýsing -

Engir femínistar á Spáni

„Ef einhver maður segir eitthvað grín þá er þetta bara orðið alvarlegt mál,“ sagði Jósep, aðspurður um hvað hann ætti við.

„Sem betur fer bý ég ekki á Íslandi.“

Nú, hvar býrðu?

„Ég bý á Spáni.“

Er ástandið allt annað þar?

„Já, það eru engir femínistar á Spáni.“

Engir femínistar á Spáni?

„Ekki eins mikið og á Íslandi.“

Og ertu ósáttur við femínista á íslandi?

„Nei, nei, ég skipti mér ekki af því. Kemur mér ekkert við. Ég þekki marga hægri, vinstri og allt. Það eru margir góðir og margir slæmir.“

Þegar maður skilur eftir svona athugasemd, þá er hún opinber.

„Já, ég veit það. Á Facebook.“

Nú erum við náttúrulega að tala um konu sem hefur orðið fyrir talsverðu áreiti í svona opnum kommentakerfum. Varaþingkonu.

„Já, já, þetta var bara einfalt grín. Ég meinti ekkert slæmt með þessu.“

Hefðirðu grínast á sama hátt ef um karlmann hefði verið að ræða?

„Já, já. Það skiptir mig engu máli hvort það sé karlmaður eða kvenmaður. Ég hef ekkert slæmt um þessa konu að segja því ég þekki hana ekki – ég veit ekki einu sinni hver þetta er.“

Geturðu skilið að það komi kannski illa við hana að lesa svona komment?

„Það getur vel verið. Þá bara skrifa ég ekkert svona aftur um einhverja konu.“

Það er kannski eitthvað til að velta fyrir sér.

„Já já, ég meinti ekkert slæmt með þessu. Ég bara sá þetta, hann skrifar „hún er villt“. Ef þetta hefði verið karlmaður og það hefði verið sagt „hann er villtur“, þá hefði ég gert það sama.

Ég hef ekkert á móti neinum þarna á Íslandi. Þetta var kannski fljótfærni, af því þetta er alþingiskona og hún er að vinna fyrir þjóðina. Þá er auðvitað betra að skrifa ekkert svona um konu sem er í svona vinnu,“ segir Jósep að lokum.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -