Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Svavar Knútur kom Ingibjörgu til varnar eftir ummæli Ernu Ýrar: „Hver meiddi hægriöfgamanninn?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ingibjörg Eyfjörð, áhrifavaldur lenti í leiðinlegri reynslu um síðustu helgi – sem hún tjáði sig um á Twitter-síðu sinni.

Færslan snerist um að einstaklingur neitaði með öllu að virða grímuskyldu og varð reiður þegar Ingibjörg benti einstaklingnum á að setja upp grímuna:

„Í gær fór ég að skæla í einni vinnunni minni, því það var manneskja sem virti ekki grímuskyldu, og þegar ég benti aðilanum á það varð hann reiður við mig.“

Maður að nafni Sigmundur sagði í athugasemd að þetta væru asnaleg viðbrögð að rífast við fólk sem fer eftir reglum sem eiga að vernda viðkvæma hópa fyrir smitum af Covid

Eðlilega, í takt við færslu Ingibjargar, var hún sammála Sigmundi:

- Auglýsing -

„En fyrir utan það þýðir ekki neitt að rífast í mér ef hún hatar grímur og grímuskyldu. Ég framfylgi þeim reglum sem mér eru settar á mínum vinnustað sem ég ÞARF að vinna á til að sjá fyrir fjölskyldunni minni.“

Margir sýndu Ingibjörgu skilning og hvöttu hana til dáða og hrósuðu.

En ekki allir.

- Auglýsing -

Blaðakonan og fyrrum formaður framkvæmdaráðs Pírata, Erna Öldudóttir, var ekki á sama máli og Ingibjörg:

„Af hverju varstu að skipta þér af því? Hvað ætlaði hún að hafa upp úr þessu? Verða kosin starfsmaður mánaðarins?. Ég er bara að spyrja. Fyrst er hún að bullya einhvern viðskiptavin með nýfengnum völdum og fer svo að grenja þegar hann sættir sig ekki við það. Mér finnst það bara fyndið.“

Þá kom til skjalanna hinn frábæri tónlistarmaður sem var ekki par ánægður með ummæli áðurnefndrar Ernu.

Sagði:

„Hver meiddi hægriöfgamanninn sem ég nenni ekki að verðlauna með reply? Grímuskyldan er hundfúl, en hún er ekki þér að kenna. Að öskra á þig yfir því er algert hámark heimtufrekjunnar.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -