Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Stefán Þór sagður grunaður um nauðgun í Amsterdam – Langur brotaferill og ítrekaðar nauðganir

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ís­lenskur karl­maður á fimm­tugs­aldri er grunaður um að hafa nauðgað og frelsis­svipt íslenska konu í Hollandi í síðustu viku. DV fullyrðir að maðurinn sé Stefán Þór Guðgeirsson sem á að baki langan brotaferil.

Lögreglan hér á landi hefur ekki viljað staðfesta hvort hinn grunaði hafi verið handtekinn í Amsterdam. Ekki hefur verið ákveðið hvort íslensk lögregluyfirvöld taki yfir lögsögu í málinu.

Stefán Þór hefur tvisvar sinnum verið dæmdur fyrir nauðgun hér á landi. Hann flutti af landi brott fyrr á þessu ári eftir væringar í undirheimum Íslands og hefur aðallega haldið til á Spáni síðan. Árið 2012 var Stefán Þór dæmdur í fimm ára fangelsi í Hæstarétti fyrir að hafa nauðgað konu í september 2009 sem hann ætlaði að kaupa vændi af en Héraðsdómur hafði áður dæmt hann í fjögurra ára fangelsi.

Í frétt RÚV kom fram að Stefán Þór hefði komið á heimili konunnar og boðið henni 20 þúsund króna greiðslu fyrir vændi. Hann var fundinn sekur um að hafa beitt konuna ofbeldi til að þröngva henni til samræðis og annarra kynferðismaka eftir að hún hafði neitað honum. Samkvæmt DV sló hann hana með hálskeðju í læri og hótaði að svipta konuna vegabréfi hennar auk þess að sprauta úr slökkvitæki.

Sex árum síðar hlaut Stefán Þór aftur fjögurra ára dóm fyrir að hafa nauðgað unnustu sinni árið 2018. Brotið átti sér stað í desember 2016 en þá þvingaði hann konuna ítrekað til samræðis, endaþarms- og munnmaka, víðs vegar um heimili sitt með því að beita hana ofbeldi og nauðgun.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -