Laugardagur 9. maí, 2026
5.8 C
Reykjavik

Starfsfólk Eflingar fékk uppsagnarbréf í nótt: „Staðið hefur verið rétt og faglega að ferlinu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Starfsfólki á skrifstofu Eflingar barst formlegt uppsagnarbréf klukkan tvö í nótt. RÚV greinir frá þessu.

Í bréfinu kemur fram að ástæða uppsagnarinnar sé skipulags- og rekstrarbreytingar sem nái til allra stöðugilda hjá stéttarfélaginu.

Í bréfinu segir ennfremur að ný störf hjá Eflingu verði auglýst og er viðtakandi hvattur til að sækja um. Uppsagnarfrestur er sagður í samræmi við ráðningarsamning viðkomandi og viðeigandi kjarasamning. Óskað er eftir að viðtakandi bréfs sinni vinnuskyldu á uppsagnartíma.

Hópuppsögnin á skrifstofu Eflingar hefur verið gagnrýnd harðlega innan verkalýðshreyfingarinnar. Drífa Snædal, forseti ASÍ, hefur til að mynda sagt verkalýðshreyfinguna hafa unnið hart að því í fjöldamörg ár að hópuppsagnir af þessu tagi ættu sér ekki stað.

Í nýrri yfirlýsingu frá Sólveigu Önnu segist hún ánægð með að samráð við trúnaðarmenn hafi skilað sér í samkomulagi. Það samkomulag felur meðal annars í sér að starfsfólk geti farið í atvinnuviðtöl á vinnutíma og að Efling muni falla frá samningsbundnum uppsagnarfresti viðkomandi starfsmanns, fái hann starf annarsstaðar.

„Ég lýsi ánægju með að samráð við trúnaðarmenn hafi skilað sér í samkomulagi. Staðið hefur verið rétt og faglega að ferlinu. Það er hins vegar mjög leitt að minnihluti stjórnar hafi ekki virt trúnað og kosið að leka upplýsingum í fjölmiðla meðan á samráði stóð,“ segir í tilkynningu Sólveigar Önnu.

- Auglýsing -

„Vanstillt umræða hefur svo farið úr böndunum síðustu sólarhringa þar sem ýmsir hafa sett sig á háan hest án þess að vita nokkuð um málið. Er það engum til sóma,“ segir hún ennfremur.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -