Aníta nokkur biðlar til netverja um fjárhagsaðstoð fyrir móður sína en hún þarf að fara með hundinn sinn, Mane, í erfiða aðgerð á mjöðm. Kostnaðurinn er mikill og þar sem móðirin er einstæð og tryggingarnar hafna bótagreiðslu biður Aníta um hjálp.
Það gerir hún í fjölmennu samfélagi kattaeigenda á Facebook, Kettir á Facebook, aðdáendur katta og allir dýravinir. Þar segir Aníta:
„Langaði að athuga hvort fólk gæti hjálpað mömmu minni. Mamma mín er einstæð móðir, og á mjög erfitt með að spyrja um hjálp með þetta. Hún á bókaðan tíma í aðgerð núna næsta þriðjudag. Mamma hringdi í tryggingarnar á fimmudaginn til að athuga hvort hún myndi fá fyrir aðgerðinni. En tryggingarnar sögðu að hundurinn hafi ekki verið nógu lengi tryggður þannig hún getur ekki fengið endurborgun frá þeim,“ segir Aníta.
Aníta bendir á að aðgerðin á hundinum komi til með að kosta um það bil 200 þúsund krónur. Þeir sem vilja aðstoða mæðgurnar geta gert það á eftirfarandi reikning:

