- Auglýsing -
Sindri Viborg, fyrrum formaður framkvæmdaráðs Pírata, telur að Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanni KSÍ, eigi eftir að reynast erfitt að sport gegn þeirri eitruðu menningu sem þrífst innan knattspyrnusambandsins. Hún hafi verið ráðin til að laga menninguna en menningin öskri á sama tíma á að formaðurinn sé einfaldlega karlmaður sem sé meðvirkur með þeirri menningu sem þar þrífst.

Sindri fjallar um skoðun sína á vanda Vöndu hjá KSÍ í færsu í samfélaginu Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu á Facebook. Hér fyrir neðan má sjá pistil hans í heild sinni:
„Það er mikið rætt um það að hún sé ekki rétta manneskjan í starfið innan KSÍ.
Eftir vandlega umhugsun er ég þessu sammála, miðað við gefin gildi.
Til að geta sinnt þessu starfi, þarf framkvæmdastjóri KSÍ að hafa ákveðna hæfileika/kosti. ef kosti skyldi kalla.
1. Framkvæmdastjórinn þarf að vera karlmaður.
2. Framkvæmdastjórinn þarf að geta kóað með þeirri menningu sem fyrir er innan KSÍ.
3. Framkvæmdastjórinn þarf að vera partur af þeirri menningu sem fyrir er innan KSÍ.
Vanda er ekki karlmaður. Því mun menningin innan KSÍ hjóla í hana, og lýsa yfir fullu vantrausti á henni. Vanda mun aldrei kóa með þessari menningu, hennar menntun og ævistarf hefur akkúrat snúist um að ná fram andhverfu þeirrar menningar sem þrífst innan KSÍ. Það eitt að menningin innan KSÍ skuli rísa á afturlappirnar og gagnrýna Vöndu, líkt og verið er að gera, eftir að upp kemst um þessi ofbeldisverk og yfirhylmingu sem framkvæmd var, er sláandi staðreynd.
Hér er verið að ráðast á manneskju sem bókstaflega er ráðin inn til að sporna við þessari eitrðuðu menningu. Við þurfum einnig að gera okkur grein fyrir því að þetta er menning. Þessi menning er ein besta birtingarmynd eitraðrar karlmennsku sem ég hef séð á Íslandi. Það að verið sé að verja þau athæfi sem landsliðsmenn framkvæmdu og það sé gert með því að kasta rýrð á Vöndu, hennar persónu og hennar störf er ekkert annað en hundaflauta fyrir allan peninginn.
Ef að það á að nást að laga þessa eitruðu menningu innan KSÍ, þá þarf eitthvað að gerast varðandi þetta fólk sem hjólar svona í nýja framkvæmdastjórann. Hvernig það er gert er svo annar sálmur, en tvennt er hægt að segja með vissu. Fyrra er að Vanda á þetta ekki skilið. Seinna er svo að þessi eitraða menning sem er innan KSÍ er ljótt illkynja mein sem fer ekki með mildum og hugljúfum aðgerðum. Getum við vinsamlegast gert eitthvað í þessu?“

