„Ég ætla ekki að neita því að þetta er ömurlegt, sárt og glatað. Mér leið illa í allan gærdag; að melta þetta allt saman,“ segir Brynja Dan, varaþingmaður Framsóknarflokksins, um rasísk ummæli formanns flokksins um Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Þetta kemur fram á RÚV.
Að sögn hringdi Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins í Brynju og ræddi við hana um ummælin. Sigurður Ingi er sagður hafa vísað til Vigdísar Häsler sem „þeirrar svörtu“ í gleðskap sem haldinn var í tilefni Búnaðarþings í lok síðustu viku.
Ummælin sjálf hafa ekki verið staðfest opinberlega en Vigdís sendi þó frá sér yfirlýsingu þar sem hún sagði þau hafa verið afar særandi. Sigurður Ingi sendi síðan frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann baðst afsökunar á ummælunum, án þess þó að tilgreina hver þau væru.
Sigurður Ingi er sagður hafa viðhaft ummælin um Vigdísi þegar taka átti hópmynd í gleðskapnum.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins, var gestur Morgunútvarpsins á Rás 2 í morgun þar sem hún sagði meðal annars frá símtali Sigurðar Inga til sín. Brynja er ættleidd frá Srí Lanka og Vigdís frá Indónesíu.
Brynja sagði í Morgunútvarpinu að hvorug þeirra Vigdísar væru svartar, heldur gular „ef fólk vill fara út í einhver tæknileg atriði.“ Brynja sagði að sér hefði liðið illa í gær á meðan hún reyndi að melta atburðarásina. „Ég fékk hins vegar símtal frá Sigurði Inga og við ræddum málið. Hann er fullur iðrunar og svekktastur út í sjálfan sig,“ sagði hún í þættinum.
Brynja þvertekur fyrir það að hafa fundið fyrir fordómum innan Framsóknarflokksins og síst af öllu frá Sigurði Inga. „Þvert á móti hefur hann verið hinum megin við borðið – að við megum vera alls konar og fagnað fjölbreytileikanum.“ Í þættinum sagði hún að við værum öll mannleg og að það skipti máli hvernig við hreinsuðum upp eftir okkur og bættum ráð okkar.

