- Auglýsing -
Deilur hafa staðið yfir varðandi samning Hafnarfjarðarbæjar og Hópbíla í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Þar er deilt um meintan forsendubrest sem orðið hafi á samningi um sérhæfða akstursþjónustu og skóla- og frístundaakstur. Athyglivert er að skoða málið því ekki verður betur séð en að klofningur sé í bæjarstjórn vegna málsins, sem Ágúst Bjarni Garðarsson, er í forsvari fyrir. Ágúst þessi er fulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn í Hafnarfirði; og er einnig þingmaður fyrir sama flokk, og hefur þegið tvöföld laun – frá Hafnarfjarðarbæ fyrir setu í bæjarstjórn og fjölda nefnda sem og frá Alþingi, eins og sjá má hér. (https://gamla.mannlif.is/ frettir/innlent/agust-er-enn- i-baejarstjorn-hafnarfjardar- samhlida-thingsetu-audvitad- finnst-sumum-thetta-skritid/)
Fulltrúi Miðflokksins – Sigurður Þórður Ragnarsson – Siggi Stormur, bókaði eftirfarandi:
„Nú liggur fyrir að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur klofnað í afstöðu sinni til þessa máls. Fulltrúi Miðflokksins hefur fullan skilning á þeim forsendubresti sem orðið hefur á samningi um sérhæfða akstursþjónstu og skóla- og frístundaakstur,“ bókar Sigurður og heldur áfram:
Tekjufall varð hjá Hópbílum, vegna færri ferða vegna COVID-19. Fulltrúa Miðflokksins þykir hins vegar óeðlilegt að tekjufall samningsaðila þ.e. Hópbíla ehf. séu að fullu bættar þ.e. 100% fyrir óeknar ferðir fyrir árið 2021. Í samningi þeim sem í gildi er milli aðila segir um óviðráðanleg atvik ? Force Majeure í lið 1.5.14: Hvorki seljandi né kaupandi verða krafðir um bætur ef óviðráðanleg atvik (force majeure) sem hvorugum aðila verður kennt um svo sem styrjöld, eldsvoði, náttúruhamfari, verkföll, verkbönn eða annað þess hátta koma í veg fyrir efndir samnings þessa. Fulltrúi Miðflokksins tekur því undir bókun Helgu Ingólfsdóttur fulltrúa Sjálfstæðisflokks í fjölskylduráði. Því tekur fulltrúi Miðflokksins neikvætt í erindið.“

