Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Seltirningar kafna úr fýlu fyrir jólin: „Þetta er búið að vera í mörg ár. Mjög pirrandi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Edda nokkur, íbúi á Seltjarnarnesi, kvartar sáran undan ólykt sem herjar í götunni hennar alla daga. Hún virðist ekki sú eina í bænum sem kvartar undan óþefnum því nágrannar hennar furða sig margir á hvaðan þessi fýla kemur.

Edda opnar á umræðuna í þræði í hópi Seltirninga á Facebook. Þar lýsir hún upplifun sinni með eftirfarandi hætti:

„Herfileg brunastybba sem herjar hérna á Valhúsabrautinni dag eftir dag. Algjör skerðing á lífsgæðum íbúa og sérstaklega erfitt fyrir þá sem hafa öndunarfærasjúkdóma. Lyktin er skelfileg. Það væri æskilegt að nágrannar hugsuðu útí það,“ segir Edda.

Ýmsir íbúar spyrja sig hvað sé verið að brenna í bænum og hverjir standi að baki brunanum. Sigríður finnur óþefinn hjá sér. „Finnum oft þessa brunalykt hér á Miðbraut, líka mjög erfitt fyrir þá sem eru með mígreni, þetta er akkúrat svona lykt sem tryggrar að mígreni,“ segir Sigríður.

Og Nives þekkir vandamálið. „Ég er á Miðbraut og þetta er búið að vera í mörg ár. Mjög pirrandi,“ segir hún.

Magnús er ekki sáttur. „Þessi lykt er oft á Melabraut líka á kvöldin, einhver ađ brenna rusli í arninum sínum eđa reykja kjöt í götu neđan Melabrautar. Eina leiđin til ađ finna sökudólginn er líklega ađ nota dróna međ hitamyndavél. Hef fengiđ þessa lykt innum svefnherbergisgluggann oft og þurft ađ sofa međ hann lokađan,“ segir Magnús.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -