Föstudagur 15. maí, 2026
8.8 C
Reykjavik

Rósa og Aron tvöfaldir Evrópumeistarar í samkvæmisdansi: „Þetta var frábær tilfinning“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og dansfélagi hennar, Aron Logi Hrannarsson, náðu þeim merka árangri að hreppa gull í Evrópumeistaramótinu í samkvæmisdansi sem fór fram í Blackpool á Englandi um páskana.

Kepptu þau í flokki 19 ára og yngri á föstudaginn langa samkvæmt Skessuhorni. Daginn eftir kepptu þau svo í U-21 árs flokknum þar sem þau gerðu sér lítið fyrir og unnu þá keppni líka. Eru þau því tvöfaldir Evrópumeistarar.

Rósa og Aron á verðlaunapalli.
Ljósmynd: Skessuhorn.is

„Þetta er klárlega einn okkar besti árangur hingað til. Þetta er eitthvað sem við höfum stefnt að. Þetta var frábær tilfinning að ná að sigri í okkar aldursflokkum og gefur okkur mikið,“ sagði Rósa Kristín í samtali við Skessuhorn eftir mótið. „Við erum þegar farin að undirbúa okkur fyrir næstu keppni sem verður í maí og fer hún einnig fram í Blackpool. Það er opið mót þar sem allir bestu dansararnir í heiminum koma saman og er svona eiginlegt heimsmeistaramót í samkvæmisdönsum. Okkur hlakkar mikið til taka þátt í þeirri keppni.“

Fram kemur á Skessuhorn.is að þau Rósa og Aron æfi alla daga vikunnar í íþróttahúsinu á Digranesi undir leiðsögn hjónanna Karenar og Adams Reeve.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -