- Auglýsing -
Tónlistarmanninum Pétri Erni Guðmundssyni hefur verið vísað úr hljómsveitunum Buff og Dúndurfréttum. Hann var söngvari í báðum sveitunum. Buff fagnaði 20 ára afmæli sveitarinnar árið 2019 með sögutónleikum.
Báðar hljómsveitirnar greindu frá þessu á Facebook síðum sínum í kjölfar þess að söngkonan Elísabet Ormslev sagði sögu sína af áratugar sambandi við Pétur sem hófst þegar hún var aðeins 16 ára en hann þá 38 ára. Elísabet var í helgarviðtali Fréttablaðsins.

