Fimmtudagur 11. júní, 2026
8.7 C
Reykjavik

Ömurleg uppákoma í Kringlunni en þessar óvæntu upplýsingar komu í ljós við handtökuna

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglu barst tilkynning um ruslatunnu sem stóð í ljósum logum á biðstöð strætó í hverfi 108 í gærkvöldi. Slökkviliðið var kallað út til þess að slökkva eldinn og gengu aðgerðir vel. Skömmu síðar hafði lögregla afskipti af manni í sama hverfi sem grunaður er um sölu fíkniefna. Um sviptað leyti lá leið lögreglu í Kringluna þar sem tilkynnt hafði verið um þjófnað. Þegar betur var að gáð reyndist sá grunaði vera á barnsaldri, yngri en 18 ára. Málið var því unnið með foreldrum og barnaverndaryfirvöldum.

Í Kópavogi handtók lögregla tvo menn sem grunaðir eru um líkamsárás. Báðir  voru látnir gista í fangaklefa en málið er til rannsóknar hjá lögreglu. Þá sinnti lögregla einnig reglubundnu umferðareftirliti og stöðvaði nokkra ökumenn sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -