Ekki er þetta í fyrsta sinn þar sem omicron kemur við sögu hérlendis.
Nirvana tónlistarfélag nemenda Menntaskólans við Hamrahlið auglýstu árið 1983 tónleikahátíð, þar sem þekktasta hljómsveitin var Tappi tíkarrass. Þegar farið er yfir listann með þeim sem komu fram má sjá að ein hljómsveitin heitir Omicron.
Hljómsveitin Omicron starfaði frá 1983 til 84 og tók m.a. þátt í Músíktilraunum Tónabæjar haustið 1983, en komst ekki í úrslit.
Meðlimir sveitarinnar voru Örn Almarsson gítarleikari, Dagur Hilmarsson bassaleikari, Bergur Helgason trommuleikari og Stefán Gunnarsson hljómborðsleikari.
Omicron kom líklega úr Hafnarfirði.

Þess má geta að Menntaskólinn við Hamrahlíð hefur alið marga þekkta tónlistarmenn á borð við; Björk, Pál Óskar, Hildi Guðnadóttur, Bríet, Víking Heiðar Ólafsson, Stuðmenn, Hjaltalín, Retro Stefson og marga fleiri.

