Ómar nokkur, íbúi í miðborginni, er uggandi yfir skemmdarverkahrinu sem virðist vera í miðbænum þar sem veggjakroti með rasískum skilaboðum er krotað á hús. Síðustu daga hefur verið krotað á að minnsta kosti þrjú hús í miðborginni.

Ómar vekur máls á vandanum í hópi hverfisbúa á Facebook og birtir þar mynd af veggjakroti þar sem finna þurfi sökudólginn hið fyrsta.
„Það þarf að finna þennan! Hvaða gerpi gerir svona!“
Margir íbúar miðborgarinnar taka undir og furða sig á þessum rasísku veggjakrotum. Christer er einn þeirra. „Sá þetta í gær og hugsaði einmitt það sama. Hver er tilgangurinn?,“ spyr Christer.
Guðrún nokkur er miður sín. „Ömurlegt – mála strax yfir þetta,“ segir Guðrún. Helga er sammála því að finna þurfi sökudólginn. „Sammála, þetta er skemmdarverk,“ segir Helga.
Lovísa segir vandann víða. „Þetta poppaði upp á nokkrum stöðum um síðustu helgi. Helvítis skemmdarvargar,“ segir Lovísa. Og Daði er sömu skoðunar og vill aðgerðir. „Þarf að skera upp herör gegn þessu. Þetta er komið yfir öll velsæmismörk,“ segir Daði.

