Föstudagur 13. mars, 2026
1.8 C
Reykjavik

Ólafur varð kjaftstopp í Krónunni: „Þetta er nú meira ruglið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ólafi nokkrum blöskraði mjög í heimsókn sinni í lágvöruverslun Krónunnar á dögunum. Ástæðan er himinhá verðlagning búðarinnar á lambahrygg sem hann langaði til að kaupa sér í matinn.

Ólafur fjallar um upplifun sína í fjölmennum hópi matgæðinga, Matartips!, á Facebook. Í Krónunni hugðist hann kaupa sér hálfan lambahrygg frá Norðlenska sem vó 1.2 kíló en hætti snarlega við þegar hann brá stykkinu undir verðskannann. Þar kom í ljós að hryggurinn hálfi kostar 4.234 krónur eða 3.499 krónur kílóið. Þetta hefur Ólafur að segja um verðlagninguna:

„Þetta er nú meira ruglið.“

Fjölmargir furða sig á verðlagninu Krónunnar og Norðlenska í þessu tilviki. Sigurður er einn þeirra. „Svaklegt rugl verð!,“ segir Sigurður ósáttur.

Kristínu er afar brugðið. „Almáttugur. Sé ég get ekki keypt hrygg fyrir jólin. Hangikjöt kostar eitt nýra liggur við,“ segir Kristín.

Diljá er hugsi og veltir fyrir sér hvað ráði þessum háu verðum búðarinnar. „Ég hugsa nú bara mest um, hvað þetta er alls ekki að skila sér til bænda þetta háa verð,“ segir Diljá. Þórður hugsar á svipuðum nótum. „Milliliðirnir, ábyggilega margir í eigu kvótagreifa hirða allan ávinninginn,“ segir Þórður ákveðinn.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -