Ólafur Bragi Bragason er látinn og var hann 67 ára gamall en Ólafur lést í Amsterdam. DV greinir frá andláti hans.
Ólafur var þekktur afbrotamaður á Íslandi á síðustu öld og var meðal annars eftirlýstur af Interpool í 20 ár. Hann var ítrekað handtekinn og dæmdur vegna fíkniefnamála á Íslandi en hann fluttist til Spánar á 10. áratug síðustu aldar.
Hann hlaut síðar dóma í Danmörku og Bretlandi vegna fíkniefnainnflutnings. Þá var hann grunaður um að hafa flutt inn tvö tonn af hassi til Túnis rétt fyrir aldamót en hann hlaut aldrei dóm í því máli.
Í viðtali við DV árið 2017 vildi Ólafur ekki greina frá því hvar hann ætti heima en neitaði því að vera í felum. Hann væri í vinnu og borgaði alla sína skatta. Hann sagðist einnig hafa verið í sambúið seinustu 13 ár.
Ólafur Bragi er látinn

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
