Sunnudagur 8. mars, 2026
1.7 C
Reykjavik

Oddur óttasleginn eftir Husky-árás í Árbænum: „Vara ég aðra við þessum hundi!“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Oddur nokkur, íbúi í Árbænum, er óttasleginn eftir að Husky-hundur réðst á dverg-Schnauzer hund hans í gærkvöldi. Hundur hans er talsvert særður eftir árásina og varar Oddur við hvítum Husky-inum nærri Árbæjarlaug.

Oddur segir frá árásanni í hópi hverfisbúa á Facebook. Þar varar hann nágranna sína við:

Þessa mynd af blóðugum og bitnum hundin sínum birti Oddur.

„Rétt í þessu réðst laus hvítur Husky á dverg-Schnayzerinn minn. Umræddur Husky er hvítur og gengur laus ofan við Árbæjarlaug. Þið sem takið ykkur á hendur að halda Husky ættuð að sjá sóma ykkar í að passa að þeir gangi ekki lausir,“ segir Oddur og bætir við:

„Á sama tíma vara ég aðra við þessum hundi. Schnauzerinn er talsvert særður. Hann hvarf, Huskyinn, og sú sem hélt í Schnauzerinn var svo brugðið að hún tók ekki mynd. Ég ætla ekki að leiða hugann að því hvernig hefði farið ef 10 ára pjakkurinn hefði haldið í ólina.“

Sandra er ein þeirra íbúa sem er mjög brugðið við frásögnina. „Úff þetta er alls ekki gott að heyra. Er búið að heyra í neyðarvaktinni? Gg er búið að fanga hundinn? Eitthvað vitað um eiganda?,“ spyr Sandra.

Már á Husky-hund og sárnar honum umræðan um hundategundina. „Á þetta ekki við alla hundaeigendur,  ekki bara husky? Það er jafnóþolandi að mæta geltandi og lausum öðrum tegundum af hundum lika. Enn og aftur þá er alltaf tekið fram ef þetta er Husky en ef einhver önnur tegund gengur um laus virðist það vera mun minna mál, jafn slæmt eins og það er. Minni á hundana tvo í vogakverfi sem drápu köttin þar fyrir fáeinum dögum ekki var það hösky tegund, segir Már.

- Auglýsing -

Oddur átti von á viðbrögðum Husky-eigenda. „Ég átti svo sem alveg von á því að það mundi heyrast í Husky eigenda en stutta svari er nei þetta á alls ekki við um alla hunda og ég fullyrði að sumar tegundir eru mun líklegri en aðrar til að bregðast svona við,“ segir Oddur ákveðinn.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -