Það var heldur betur stuð hjá nunnum í kaþólskri kirkju í Metairie í Louisiana í Bandaríkjunum en þær nutu sín í botn í snjóboltastríði við prestinn í kirkjunni. Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs báðu þær til guðs um snjókomu og báðu söfnunarmeðlimi kirkjunnar að gera slíkt hið sama.
„Rétt fyrir jólafríið, þegar það var 24°C hiti og rakt, var talað um að biðja fyrir snjó þegar við kæmum aftur úr fríinu,“ sagði Kristine Cerniglia, söfnunarmeðlimur kirkjunnar, við fjölmiðla.
Snjókoma í bænum er afar sjaldgæf og hefur aldrei sést í því magni sem sást í síðustu viku síðan mælingar hófust á 19. öld.
Til að fagna öllum þessum snjó ákváðu nunnurnar Anna Margaret, Maria Caeli og Felicity að keppa við séra Tim Herick í snjóboltastríði og er ljóst á myndbandi sem tekið var upp af stríðinu að mikil gleði ríkti hjá þeim öllum.
Nunnur báðu til guðs um fönn og endaðu í snjóboltastríði við prestinn – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
