Laugardagur 7. mars, 2026
1.8 C
Reykjavik

NEYÐARKALL – Óttast um líf móður sinnar á Íslandi: „Hún er allt sem ég á eftir“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jakub er pólskur og móðir hann býr hér á landi. Hann óttast um líf hennar á Íslandi í kórónuveirufaldrinum og sendi hann út neyðarkall til netverja í þeirri von að bæta hag móðurinnar og vonandi finna handa henni atvinnu.

Jakub ritaði einlæga færslu í hóp útlendinga sem búsettir eru hérlendis. Við skulum gefa honum hreinlega orðið:

„Mig vantar ráð frá ykkur. Móðir mín býr á Íslandi. Og í hreinskilni, þá er ég skelfingu lostinn um hvernig líf hennar er. 

Móðir mín var með stöðuga vinnu til 2019. Þá veiktist hún og þurfti í bráðaaðgerð. Þá veiktist pabbi líka og lést á þessu ári. Síðan 2019 hefur hún ekki komist til Póllands vegna Covid-19 faraldursins. Og síðan þá hefur hún ekkert getað unnið, var fyrst á örorkubótum og nú atvinnuleysisbótum. 

Allt sem hefur komið fyrir hana hefur orðið til þess að hún sér engan tilgang í lífinu. Hún situr í leiguherberginu sínu og er ekki einu sinni með bíl. Henni líður eins og hún hafi misst allt saman. 

Segið mér, er það svona rosalega erfitt að finna vinnu á Íslandi í augnablikinu. Mamma talar ekki góða íslensku að mati vinnuveitenda. Svo að hún getur aðeins unnið störf sem krefjast ekki tungumálsins. 

- Auglýsing -

Mér líður eins og ég þurfi að hjálpa henni með einhverjum hætti, finna handa henni vinnu. Skiptir engu máli hvaða vinnu. Ég hef það á tilfinningunni að finni hún ekki vinnu fljótlega, kunni hún að deyja. Með engan tilgang í lífinu, annars hvort mun líkami hennar gefast upp eða hún mun enda líf sitt.

Ég vona það hljómi ekki tilgerðarlega, en ég er mjög áhyggjufullur yfir henni. Hún er allt sem ég á eftir. 

Elskurnar, þið sem hafið verið á Íslandi svona lengi. Segið mér, hvað get ég gert í þessari stöðuÐ Er það raunhægt að ná einhverju fram hér?“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -