Í Facebook hópnum Hundasamfélagið birti Tanja nokkur færslu sem vakti heljarinnar athygli. Hún segir frá símtali úr leyninúmeri sem hún gat ekki hundsað. Eftir símtalið var hún hundfúl.
„Það var hringt í mig í dag úr leyninúmeri. Ég var of forvitin þannig að ég svaraði. Það var maður sem sagðist vera nágranni minn að kvarta undan því að hundurinn okkar væri að gelta allan daginn og hann vinnur á nóttinni og gæti ekki sofið á daginn. Ég kom af fjöllum og sagði að ég væri heimavinnandi húsmóðir og myndi vita ef hundurinn væri að gelta á daginn og spurði hvort hann væri með vitlaust númer, það væru þó hundar í hverfinu sem væru með hávaða allan daginn. Þá sagðist hann vera með upptöku og að nágrannar hefðu skrifað undir undirskriftarlista til að styðja við þessa kvörtun. Hann sagði að hann hefði verið að fylgjast vel með og við færum ekki nógu oft út með hundinn í göngutúra (mjög krípí vægast sagt).“
Þegar þarna er komið sögu virðist hundur kominn í þann sem hringdi.
„Að lokum sagði hann að hundurinn okkar sé ljótur. Svo skellti hann á. Þessi maður var fullorðinn og grafalvarlegur (að heyra) og talaði íslensku en þó svo hundurinn okkar væri að gelta inni (sem er ekki) þá er húsið okkar það langt frá öðrum húsum að það myndi engan trufla. Hann sagði aldrei hvað hann héti eða nefndi götuna eða hverfið okkar. Hafa fleiri verið að fá svona símtöl? Það hefur verið eitthvað af furðulegum símaötum nýlega. Einnig datt mér í hug að þetta hafi verið útvarpsstöð…
Hvað kemur það málinu við ef honum finnst hundurinn minn ljótur hvort sem er,“ segir Tanja í lokin og finnst þetta greinilega hundfúlt.
Heilmargir hafa skrifað athugasemd við færslu hennar þar sem flestir lýsa yfir undrun sinni og stuðningi við hana. Þá eru þó nokkrir, eins og Lilja sem benda Tönju á að um símaat sé að ræða. „Þegar eru síma hrekkir sem lögreglan er að vara við á síðunum sínum ! Þetta er forrit með upptöku sem er að tala við . Hundurinn þinn er dásamlegur þrátt fyrir að sjást varla undan grímunni en með falleg augu er hann svo sannarlega.“

