Héraðssaksóknari hefur ákært konu fyrir mansal en hún er sögð hafa haft fjögur stjúpbörn sín í nauðungarvinnu þegar þau voru börn að aldri. Stjúpmóðirin er sögð hafa látið þrjú barnanna vinna allt að 13 klukkustundir á dag, 6 til 7 daga vikunnar og það fjórða í allt að tvær klukkustundir á dag, þrjá daga vikunnar.
Konan er í ákærunni sögð að hafa nýtt hluta af launum barnanna til að láta reisa fyrir sig hús erlendis. Þetta er í fyrsta skipti í áratug sem ákært er fyrir mansal hér á landi.
Konan, sem er íslensk en hefur sterk tengsl við erlent land, er einnig ákærð fyrir brot í nánu sambandi og brot gegn barnaverndarlögum. Hún er sögð hafa ítrekað og á alvarlegan og sérstaklega sársaukafullan hátt gert lítið úr börnunum og frammistöðu þeirra, kallað þau aumingja og öskrað á þau vinnustað þeirra og heimilum þeirra.
Þá er hún sögð hafa bannað þeim að stunda tómstundir og hitta vini sína, neitað elstu börnunum að fara í framhaldsskóla að grunnskólanámi loknu og haft í hótunum um að senda þau aftur til heimalands síns.
Notaði fjármagn til byggingu húsnæðis erlendis
Konan er sömuleiðis er ákærð fyrir peningaþvætti með því að hafa leynt ávinningi af brotum sínum, rúmlega 16 milljónum. Tæplega 11 milljónir er hún sögð hafa umbreytt í erlendan gjaldeyri sem hún fluttu síðan úr landi og notað var til að fjármagna byggingu húsnæðis í eigu hennar.
Samkvæmt ákærunni krefja börnin fjögur stjúpmóður sína um 29 milljónir.
Saksóknari telur að með þessari háttsemi hafi konan misboðið börnunum, vanrækt þau andlega og líkamlega og ógnað heilsu og velferð þeirra. Hún hafi sýnt af sér vanvirðandi háttsemi, yfirgang, ruddalegt og ósiðlegt athæfi í þeirra garð.
Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í þessum mánuði. Í henni er konan sögð hafa verið gift föður barnanna, flutt þau hingað til lands, hýst þau og útvegað þeim vinnu hjá fyrirtæki þar sem hún var verkstjóri og stýrði daglegum rekstri.
Henni er gefið að sök að hafa nýtt laun barnanna, rúmar 16 milljónir, í eigin þágu. Þetta er hún sögð hafa gert með því að millifæra peninginn út af reikningum þeirra yfir á eigin reikninga og greiðslukort eða látið þau taka fjármuni út úr hraðbönkum og afhenda sér.

