Þriðjudagur 12. maí, 2026
7.8 C
Reykjavik

Löng röð myndaðist fyrir utan Blush: „Þetta er geggjað!“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það eru ekki bara súkkulaðiegg sem gleðja um páskana en löng röð myndaðist meðfram hjálpatækjaversluninni Blush á Dalvegi í Kópavogi fyrir klukkan 11 í morgun. Ástæðan fyrir röðinni var páskaeggjaleit Blush en verslunin fagnar með þessu 11 ára afmæli verslunarinnar. Fyrir einskæra tilviljun var blaðamaður Mannlífs á staðnum. Og fangaði stemmninguna.

Eftirvænting fólks fyrir utan Blush var rafmögnuð þegar klukkan sló 11 í morgun. Fólk á öllum aldri og kynjum ætti þá inn í verslunina og hófst við að leita að páskaeggjum í von um eggjandi vinninga. Fljótlega tók einn og einn að týnast að afgreiðsluborðinu með egg sem það fann falið á bak við gervilimi, rassainnstungur, múffur,  handjárn, sleypiefni og fleira skemmtilegt sem hægt er að finna í kynlífstækjaverslun. Ekki voru allir jafn fundvísir en það er enn von því það verður opið til 21:00 í kvöld og það er eggjum bætt við reglulega.

En hvað er í eggjunum? Nammi? Málshættir? Titrarar? Nei, það er miði með númeri á. Vinningarnir sem hægt er að fá á þessi númer eru allskonar, frá sleipiefnum og spilum til sogtækja og gjafabréf fyrir allt að 100.000 kr. Já og ýmislegt þar á milli

Og úr því að blaðamaður Mannlífs var alveg óvart staddur fyrir utan Blush þegar lætin byrjuðu ákvað hann að taka eiganda Blush, Gerði Huld Arinbjarnardóttur, tali.

Gerður í Blush
Ljósmynd: Björgvin Gunnarsson

Blaðamaður: „Ertu ekki ánægð með byrjunina?“
Gerður: „Jú, ekkert smá! Þetta er geggjað! Það var röð meðfram öllu húsinu klukkan 11.“
Blaðamaður: „Frábært, og þetta er bara rétt að byrja ekki satt?“
Gerður: „Jú, við erum með opið til kl. 21:00 en frá klukkan 18:00 bjóðum við upp á Dj og fljótandi veitingar og svo verðum við með sérstakan leynigest.“

Þó að blaðamaður Mannlífs hafi ekki haft heppnina með sér í þetta skiptið voru margir sem fóru heim með bros á vör og vinning sem hjálpar til að gera páskana gleðilega.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -