Sextán ára drengur hefur í tvígang lent í því síðustu tvo daga að lögreglan hefur afskipti af honum en hann er með sama litarhaft og strokufanginn Gabríel Douane Boama. Í gær var hann í sakleysi sínu í strætisvagni er tveir lögreglubílar og sérsveitin réðist inn og tóku drenginn til að ganga úr skugga um að hann væri sá sem þeir leituðu að. Í morgun gerðist það svo aftur að lögreglan hafði aftur afskipti af honum þegar hann var staddur í bakaríi ásamt móður sinni. Myndband náðist af atburðinum.
Móðirin er afar ósátt við málið en hún hefur skrifað tvær færslur á samfélagsmiðlum um málið en ekki gefið fjölmiðlum leyfi til að vitna beint í orð sín. Mannlíf virðir það. Telur móðirin þetta ekki vera lögregluvandamál, heldur samfélagslegt vandamál.
Það lítur út fyrir að vegfarandi hafi hringt í lögregluna í morgun og tilkynnt að strokufanginn væri í bakaríinu. Í gær var lögreglan harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlunum í gær eftir að drengurinn var tekinn í strætisvagninum af lögreglunni. Samkvæmt DV var vagninn stoppaður af vopnuðum sérsveitarmönnum eftir að ábending hafði borist um að strokufangann væri þar að finna.
Móðir drengsins, sem er lögmaður, fór á fund lögreglu í gær og krafðist afsökunar en
lögreglan gaf frá sér yfirlýsingu vegna málsins í gær:
„Lögregla leitar nú ungs manns sem tilheyrir minnihlutahópi á Íslandi, en hann strauk frá lögreglu og er talinn hættulegur. Í dag var sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til aðstoðar við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu þar sem ábending hafði borist um að sá eftirlýsti væri í strætisvagni í Reykjavík. För vagnsins var stöðvuð en þegar sérsveitarmenn fóru inn í vagninn þá sáu þeir strax að ekki var um að ræða einstaklinginn sem var verið að leita að og yfirgáfu þeir því vagninn.
Móðir drengsins hafði samband við ríkislögreglustjóra í kjölfarið og lýsti áhyggjum af þeirri stöðu sem komin væri upp, þar sem ungmenni í minnihlutahópi óttist að vera tekin í misgripum vegna útlits. Í samtalinu komu fram mikilvægar áherslur sem ríkislögreglustjóri ætlar að bregðast við, þ.m.t. samtal við samfélagið um fordóma.
Ríkislögreglustjóra þykir leitt að drengurinn hafi í dag orðið hluti af þessum aðgerðum lögreglu en ábending barst um að hann væri sá sem var lýst eftir, sjálfur hafði drengurinn ekkert unnið sér til sakar.Þá hvetur embættið til varkárni í samskiptum um þetta mál og önnur mál sem tengjast minnihlutahópum. Fordómar eiga aldrei rétt á sér. Leit að hættulegu fólki má ekki verða til þess að minnihlutahópar í okkar samfélagi upplifi óöryggi eða ótta við að samferðafólk þeirra tilkynni það til lögreglu án tilefnis.Fordómafullar athugasemdir verða áfram fjarlægðar af miðlum lögreglunnar um málið og lokað verður fyrir frekari athugasemdir. Ábendingum sem tengjast málinu skulu eftir sem áður berast Lögreglunni í síma 112.“
Myndband er nú í dreifingu á samfélagsmiðlunum en Mannlíf hefur séð það. Þar sést móðirin standa við hlið sonar síns sem situr í bakaríinu og tveir lögreglumenn fyrir framan þau. Móðirin, sem er skiljanlega í uppnámi, segir: „Þetta er ekki hann! Þetta er barnið mitt!“ Hún bætir svo við að hún viti hver hafi hringt í lögregluna. „Ég sá manninn í Teslunni, ég veit að það var hann sem hringdi í ykkur.“ Hún bæti svo við að hún hafi komið úr vinnunni til að róa strákinn sinn niður eftir atvikið í stætisvagninum.

