Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Lögreglan rýmdi leiksskóla: „Þurfa ekki að hafa áhyggjur af börnum sínum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Lögreglan á Vestfjörðum rýmdi leikskólann Eyrarskjól á Ísafirði eftir að tilkynnt var um reyk sem legði frá skólanum. Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar eru allir heilir og engin hætta á ferðum fyrir leikskólabörnin.
Allir nemendur og starfsfólk leikskólans þurftu að yfirgefa leikskólann og héldu þau öll yfir í Safnahúsið, næsta hús. Foreldrar eru beðnir um að hafa ekki áhyggjur af börnum sínum:
„Leikskólinn Eyrarskjól rýmdur – allir heilir. Rétt í þessu barst lögreglu og slökkviliði tilkynning um reyk sem legði frá leikskólanum Eyrarkjól á Ísafirði. Leikskólinn var rýmdur og var öllum nemendum og starfsfólki beint í næsta hús, Safnahúsið. Liðsfólk RKÍ á Ísafirði fer í Safnahúsið að huga að börnum og starfsfólki. Foreldrar þurfa ekki að hafa áhyggjur af börnum sínum. Allir eru heilir og engin hætta á ferðum. Leikskólabyggingin hefur þannig verið rýmd og er slökkviliðið að leita orsaka reyksins,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -