Sunnudagur 9. ágúst, 2026
7.2 C
Reykjavik

Lögregla kom að unglingum sem veiddu óvanaleg dýr í gærkvöldi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögregla sinnti heldur óvanalegu útkalli í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um ungmenni að reyna að lokka til sín dúfur og handsama þær. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að ungmennin voru með gildru og höfðu þegar handsamað tvær dúfur og sett ofan í bakpoka sem þau höfðu meðferðis. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvernig málinu lauk.

Síðar um kvöldið þurfti lögregla að hafa afskipti af tveimur karlmönnum í annarlegu ástandi. Annar þeirra var öldauður í anddyri hótels en gekk hann sína leið þegar lögregla vakti hann. Tvær tilkynningar bárust lögreglu um grunsamlegar mannaferðir og aðrar tvær vegna líkamsárásar. Þá var brotist inn í heimahús í Garðabæ þar sem verðmætum var stolið en þjófurinn hefur enn ekki náðst. Auk þess sinnti lögregla reglubundnu umferðareftirliti og stöðvaði  ökumann sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna.

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -