Leifur Garðarsson hefur dregið umsókn sína til baka en hann hafði verið ráðinn í stöðu deildarstjóra unglingasviðs Stapaskóla í Reykjanesbæ. Mætti ákvörðun skólastjórnenda mikilli andstöðu foreldra og samfélagsins á Reykjanesinu.
Samkvæmt frétt Víkurfrétta hefur Leifur nú dregið umsókn sína til baka en samkvæmt heimildum Mannlífs var krafa um að hann gerði það, nokkuð hávær í efstu stigum stjórnsýslu Reykjanesbæjar.
Eins og fram hefur komið í fréttum Mannlífs, voru foreldrar barna í skólanum mjög ósátt við ráðninguna. Skoruðu foreldrafélög Stapaskóla á skólayfirvöld að hætta við ráðningu Leifs „í ljósi alvarlegra ásakana um óviðeigandi hegðun hans gagnvart ungum konum er almenn óánægja foreldra og nemenda skólans með ráðningu hans.“
Sjá einnig: Foreldrafélög Stapaskóla vilja ekki Leif: „Í ljósi alvarlegra ásakana um óviðeigandi hegðun“
Fyrir rúmu ári hætti Leifur störfum sem skólastjóri Áslandsskóla í Hafnarfirði eftir að upp komst um óviðeigandi skilaboð sem hann sendi á leikmann í kvennaflokki í körfubolta en hann var dómari í efstu deild. Honum var í kjölfarið meinað að dæma fleiri körfuknattsleiki á vegum KKÍ.
Sjá einnig: Leifur Garðars ráðinn sem deildarstjóri unglingadeildar Stapaskóla: „Fólk var varla að trúa þessu“

