Brynja Mist Snorradóttir hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum en ítrekað koma upp mál þar sem fólk segist hafa selt henni ýmsa hluti en hún ekki borgað fyrir þá. Brynja hefur þá sýnt fólki millifærslu sem er fölsuð. Þrátt fyrir viðvaranir virðist hún alltaf finna sér ný fórnalömb. Síðasta sumar var Facebook færslu dreift víða þar sem maður nokkur segist hafa selt henni úr á 350 þúsund krónur en hún hafi aldrei borgað honum.
Í desember síðastliðnum er Brynja sökuð um að leika sama leik þegar hún þóttist borga tölvu.
„Hún þóttist vera millifæra fyrir framan mig og syndi mér kvittunina frá bankanum en enginn millifærsla var komin. Ég gerði þau mistök að leyfa henni að fara þar sem millifærslur geta verið lengi að koma í gegn. Það næst ekki í hana,svara engum skilaboðum og skellir á mig þegar ég reyni að hringja,“ sagði í einni af mörgum færslum þar sem varað er við Brynju.
Í gær kom inn enn önnur færslan en þar var um að ræða nýjan Iphone 13 síma.
Þetta er bara brot af þeim frásögnum sem birtar hafa verið á samfélagsmiðlum en einnig er hún sögð hafa stolið Gucci veski á 155 þúsund.
Brynja virðist nota þá aðferð að eiga við skjáskot af millifærslum þar sem hún breytir viðtakanda og kennitölu, þegar fengurinn er kominn í hennar hendur stingur hún svo af og svarar engum skilaboðum.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Brynja ratar í sviðsljósið en fyrir um áratug var sífellt lýst eftir henni af lögreglu. Hún var þá undir lögaldri og stundaði það að strjúka að heiman.
Faðir Brynju, Snorri Snorrason, fór í viðtal í þættinum Fósturbörn árið 2018 en þeir voru sýndir á Stöð 2. Þar sagði hann frá erfiðri lífsleið en bæði hann og móðir Brynju glímdu við fíknisjúkdóm. „Ég kynnist barnsmóður minni, móður Brynju. Það var stormasamt samband, mikil neysla. Brynja fæðist árið 1997 og það var töluverð neysla alla meðgönguna. Brynja var tekin af okkur þriggja mánaða. Sem betur fer segi ég í dag, sem betur fer og sett í fóstur. Við vorum hvorugt hæf,“ sagði Snorri í þættinum.



Landsmenn eru hvattir til þess að fara varlega í viðskiptum við einstaklinga í gegnum netið og passa það sérstaklega að greiðsla sé farin í gegn þegar söluvara er afhent.

