Áhöfn varðskipsins Freyju tók þátt í uppgönguæfingu á dögunum þar sem partur af áhöfninni fór um borð í þýsku freigátuna Sacsen.

Á heimasíðu Landhelgisgæslunnar segir að áhafnir Gæslunnar hjóti ýmiskonar þjálfun til að bregðast við ólíkum og krefjandi aðstæðum á hafinu í kringum Ísland. Nú á dögunum tók Áhöfn varðskipsins Freyju þátt í svokallaðri uppgönguæfingu en með þeim á æfingunni var áhöfn norska herskipsins Thor Heyerdahl. Var æfingin liður í Norður-Víkingi 2022.

Á Norður-Víkingi hefur að sögn Gæslunnar, áhöfnun hennar gefist mikilvægt tækifæri til að samhæfa aðgerðir með samstarfsþjóðunum, þá sérstaklega á sviðið leitar og björgunar.


Ljósmyndir: Guðmundur St. Valdimarsson.

