Kristján Einar Sigurbjörnsson hefur verið á milli tannanna á fólki síðustu daga eftir að fréttir bárust af handtöku hans á Spáni en þar er hann enn í haldi. En hver er Kristján Einar sem stundum gengur undir nafninu Kleini?

Ljósmynd: Instagram-skjáskot
Rómantíski sjómaðurinn
Kristján Einar, 24 ára, er fæddur og uppalinn á Húsavík en býr nú í Hafnarfirði ásamt unnustu sinni, Svölu Björgvinsdóttur söngkonu en samband þeirra hefur vakið athygli vegna 21 árs aldursmunar parsins. Á hann fimm ára dóttur úr fyrra sambandi. Auk þess að vera áhrifavaldur, en hann heldur úti bæði Instagram-síðu og tiktok aðgangi, er hann sjómaður. Í viðtali við Fréttablaðið árið 2021, segist Kristján una sér vel á sjónum: „Ég er uppalinn í miklum útgerðarbæ og hef upp síðkastið starfað á því magnaða skipi, Helgu Maríu í eigu Brims. Sjórinn herðir mann og þetta er erfið vinna, en hún gefur mikið og þarna getur maður kúplað sig út úr lífinu í borginni og núllstillt hugann, sem mér finnst nauðsynlegt af og til. Ég er mjög ánægður með að vera sjómaður eins og er, en hver veit nema lífið taki aðra stefnu einn daginn.“
Sjálfur lýsir hann sér sem „fyndnum, metnaðarfullum, einlægum, hreinskilnum og rómantískum“. Þá sagðist hann einnig í viðtalinu hafa stóra drauma. „Ég er ungur maður með stóra drauma, vinur vina minna og sem fylgir hjartanu.“
Í viðtalinu kemur fram að Kristján sé rómantískur en hann bað Svölu á afar rómantískan hátt. „Ég vil nú helst ekki segja frá bónorðinu í smáatriðum, en ég get vottað að þar var mikið af rósum, kertum og rómantík upp á tíu.“ Algjör draumur sem sagt.
Kleini
Stundum gengur Kristján Einar undir nafninu Kleini en hvaðan kemur það? „Þegar ég var yngri átti ég það oft til að hjálpa ömmu Svönu að baka kleinur og segjum sem svo að ef við ætluðum að baka hundrað kleinur varð hún alltaf jafn hissa þegar aðeins sjötíu kleinur skiluðu sér úr bakstrinum. Eftir að föðurbróðir minn sá mig svo stela kleinum hægri, vinstri, ákvað hann að byrja að kalla mig Kleina og það bara festist við mig,“ sagði Kristján í viðtalinu við Fréttablaðið sem áður var minnst á. Þar segir hann ennfremur að hann hafi verið erfiður krakki, með ADHD og því fyrirferðamikill. Segist hann ennfremur hafa lifað „rokkaralífi“ sem hann hafi nú lokið.
Dómarnir
Þessi rómantíski sjómaður á sér sínar dökku hliðar. Hefur hann verið opinn um fortíð sína sem hann segir ekki alveg uppgerða: „Ég hef markvisst unnið í sjálfum mér og náð árangri. Ég er ekki kominn á leiðarenda, tek aðeins einn dag í einu. Ég hlaut dóm á síðasta ári. Ég undi ekki niðurstöðu þess dóms og hef áfrýjað honum til Landsréttar. Þeirrar niðurstöðu bíð ég. Af tillitssemi við aðila læt ég vera að fjalla sérstaklega um málið. Þeir sem áhuga hafa á því geta kynnt sér málið og um leið varnir mínar,“ skrifaði Kristján á Instagram síðu sinni en DV sagði frá því. Landsréttur sýknaði síðar Kristján af líkamsárásinni en áður hafði hann verið dæmdur fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hóta lögreglunni lífláti á Hótel Barón á Barónstíg, árið 2020. „Einn daginn mun ég drepa einn af ykkur,“ á hann að hafa sagt við þrjá lögreglumenn sem voru við skyldustörf. Ekki hefur enn verið dæmt í málinu, samkvæmt bestu vitund Mannlífs.

