Kristinn Magnússon öryrki segist ekki vera neitt hoppandi kátur fyrir komandi jólahátíð þar sem hann hefur hreinlega ekki efni á henni. Á bankareikningi hans er að finna 22 króna innistæðu.
Kristinn ritar átakanlega færslu á Facebook þar sem hann segir frá fjárhagsvandanum og stöðu öryrkjans fyrir jólin. Við skulum hreinlega gefa honum orðið:
„Varúð! Gríðarlega niðurdrepandi status. Margir vina minna hafa haft samband við mig þar sem þau hafa tekið eftir undirliggjandi þunga og myrkri í færslum mínum og lagavali undanfarið. Ég er mjög þakklátur öllum sem hafið sýnt mér umhyggju.

Málið er að ég hef lengi glímt við bæði þunglynda og kvíða en náð að halda mér fljótandi á jákvæðni og hjálpsemi við aðra. Þennan mánuðinn hefur álagið einfaldlega verið of mikið og ég hef þurft að berjast af hörku við eigin niðurdrepandi hugsanir.
Eftir síðustu mánaðarmót var ekkert eftir á reikningnum okkar, og enn eru ógreiddir reikningar. Við höfum fengið smá aðstoð frá vinum og ættingjum til að kaupa mat og litla pakka fyrir yngstu börnin hennar. Fyrir það erum við mjög þakklát.
Þannig er staðan og kannski skiljanlegt að kallinn sé ekkert dansandi af gleði að fara inn í hátíðirnar. En kæru vinir sem nenntuð að lesa til enda, við ykkur vil ég segja að ég er ekki að biðja um vorkun eða peninga, heldur einfaldlega að útskýra mína stöðu, þar sem ég vil ekki valda mínum nánustu áhyggjum. Ég vil líka segja að ég hef gengið í gegnum verra og það birtir alltaf til.“

