Kristinn Haukur Skarphéðinsson er fallinn frá eftir skammvinn veikindi og var hann 69 ára gamall en mbl.is greinir frá andláti hans.
Kristinn fæddist árið 1956 í Reykjavík og voru foreldrar hans voru Kristín Guðmundsdóttir og Skarphéðinn Jóhannsson.
Eftir stúdentspróf fór hann í líffræðinám í Háskóla Íslands og fór svo í meistaranám í dýravistfræði í Bandaríkjunum síðar. Hann starfaði hjá Náttúrufræðistofnun Íslands í rúm 30 ár þar sem hann var meðal annars yfir fagsviði dýrafræði. Kristinn skrifaði einnig fjölda ritrýndra greina um fuglafræði og náttúrufræði.
Kristinn rannsakaði íslenska haförninn mikið á starfsævi sinni og snérust þær rannsóknir að miklu leyti um lífshætti hans og búsetu og var Kristinn mjög virtur á sínu sviði fyrir þær rannsóknir.
Kristinn lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn.
Kristinn er látinn

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
