Kona sem er sökuð um að hafa fengið óþekkta konu um að umskera son sinn í heimahúsi á Akureyri árið 2022 þarf að greiða fjórar milljónir í miskabætur ef héraðsdómur hlustar á saksóknara í málinu.
Eftir að umskurðurinnn var framkvæmdur þurfti að flytja drenginn, sem var þá 17 mánaða gamall, á sjúkrahús vegna blæðingar. Þá þurfti að endurumskera hann til að koma í veg fyrir sýkingu og dvaldi hann á sjúkrahúsinu í tvo daga. Í ákærunni er sagt að móðirin hafi ógnað lífi sonarins með háttsemi sinni.
Samkvæmt heimildum RÚV var aðgerðin framkvæmd af trúar- og menningarlegum ástæðum. Krafist er þess að konan verði dæmd á grundvelli almennra hegningarlaga og barnaverndarlaga til refsingar en þinghald í málinu er lokað.
Krefjast fjögurra milljóna króna vegna umskurðar barns á Akureyri

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
