Hugrún Hreggviðsdóttir varð fyrir árás dökks boxer-hunds í neðra Breiðholti að morgni 2. nóvember. Vill hún komast í samband við eiganda hundsins, enda hefur árásin haft mjög slæmar afleiðingar fyrir hana en hún situr uppi með kostnað og heilsutap.
DV fjallaði um málið í dag en Hugrún lýsir árásinni í Facebook-hópi íbúa Breiðholts.
„Þann 2 nóvember var ég að labba með dóttir mína á leikskólann hér í neðra Breiðholti og tók hundinn minn með til að leyfa honum að pissa í leiðinni.
Ég var búin að færa okkur í smá fjarlægð því ég vissi að að 1 árs hundurinn minn á það til að fara í verndarhug og sýna smá urr. Hundur nálgast og minn fer í stellingu og urrar smávægilega. Þegar ég labba og sparka í áttina að mínum hundi til að engin slagsmál yrðu þá stekkur stór boxer á mig, ég tel hann líklegast boxer blöndu því hann var frekar stór meðað við hreinan boxer. Mig minnir að hann hafi verið dökkur.
Þarna stend ég öll í blóði, gangstétt öll í blóði og hundurinn minn líka. Eigandinn kíkir á hundinn sinn sem ég skil 100% og ég spyr á ensku og íslensku hvort allt sé í lagi en eigandinn strunsaði í burtu. Þetta er smátt og smátt að rifjast upp en það sem mig langaði að athuga er hvort einhver kannist við dökkan boxer eða boxerblending, líklegast var erlend manneskja með hann.“

Mynd: birt með leyfi Hugrúnar
Afleiðingarnar af árásinni eru skelfilegar fyrir Hugrúnu en hún hefur í nokkur skipti þurft á sýklalyfjagjöf að halda og eru taugalæknir, smitsjúkdómalæknir á bráðalyflæknideild sem og skurðlæknir komnir í málið.
Í guðanna bænum farið varlega í myrkrinu á morgnana, þó ég hafi fært mig ca 5-6 m frá þá gerðist þetta samt. Hundurinn minn getur verið með mikinn dólg en hann hefur ALDREI ráðist á fólk eða meitt neinn. Border collie minn er komin í mikla meðferð því hann er komin með svakalegn kvíð og hræddur að mæta öllum hundum, hvað þá ef þeir nálgast mig.“
Í samtali við DV segir Hugrún að VÍS, sem er hennar tryggingafélag, bæti henni ekki þessa árás og segist hún vera komin í mínus, fjárhagslega vegna kostnaðar eftir árásina. Tekur hún fram að hún vilji ekki vorkunn en vill komast í samband við eiganda boxersins.
Fréttin hefur verið uppfærð. Hundeigandinn er fundinn.

