Fótboltamaðurinn Kolbeinn Sigþórsson íhugar nú að hætta í fótbolta. Þetta er haft eftir umboðsmanni hans. Kolbeinn hefur hafnað tilboðum frá nokkrum félagsliðum og er sagður hafa misst metnaðinn fyrir íþróttinni. Vísir greinir frá þessu.
Umboðsmaður Kolbeins, Fredrik Risp, ræddi málið við sænska fjölmiðilinn Fotbollskanalen. „Hann átti erfitt síðasta haust,“ segir Risp í samtali við fjölmiðilinn. Hann segir íslenska landsliðið hafa verið hvatningu Kolbeins til að spila með félagsliðum. „Þannig að hann er ekki alveg viss um hvað hann á að gera með framtíð sína, hvort hann ætti að spila áfram eða finna sér vinnu við eitthvað annað,“ segir umboðsmaðurinn.
„Hann hefur misst metnaðinn fyrir fótboltanum,“ segir Risp. Hann segir Kolbein hafa fengið tilboð frá sænskum félagsliðum og félögum úti í heimi en að hann hafi hingað til ekki verið tilbúinn til að stökkva á neitt.
„Hann hefur ekki ákveðið hvort hann ætlar að hætta en því lengur sem líður frá því að hann spilar því erfiðara verður að fara aftur út á völlinn, jafnvel þótt hann haldi sér við á Íslandi,“ sagði umboðsmaðurinn í viðtalinu.

