Þingkona Sjálfstæðisflokksins, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, skilur lítið í heftu aðgengi að klámi fyrir börn og tjáir sig um málið á Twitter-reikningi sínum; en nýlega var greint frá því að stjórnvöld hefðu uppi áform um að hefta aðgang barna undir átján ára að klámi með rafrænum lausnum, líkt og rafrænum skilríkjum.
Þingkonan spyr hvort það væri ekki betra að sinna fyrst kallinu um aukna kynfræðslu, en að mati Berglindar, er verið að leggja til vitlausa leið:

„Klám hættir ekki að vera til þó aðgengi að því verði flóknara. Ný vandamál kalla á nýjar lausnir – ekki boð og bönn,“ segir hún í færslu sinni á Twitter.
Í athugasemd við fréttina um færslu Berglindar á vefsíðunni hringbraut.is segir Sandra Björk:
„Hvernig væri að slaka aðeins á með of mikla kynvitund til krakka sem eiga bara að vera upptekin við að vera börn áður en fullorðið fólk fer að troða sinni fjölbreyttu brenglun inní hausinn á þeim án þess að fylgjast vel með hvað þau gera með þær upplýsingar?

Kenndir vakna á ákveðnum tíma tengt aldri og félagslegu umhverfi, afhverju þurfa krakkar sem eru varla farin að stelast í mömmukossa að vita allt um endaþarmskynlíf og fetish hegðun en ekki að læra að skilja tilfinningarnar sínar? Getum við byrjað að fræða börn um sjálfsvirðingu og ábyrgðina sem fylgir kynferðislegum samskiptum?“

