Miðvikudagur 11. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Jóhannes segir hrunið kannski byrjað: „Vitleysan er ótrúleg“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rithöfundurinn Jóhannes Björn Lúðvíksson segir að alþjóðlegt hrun sé jafnvel byrjað nú þegar og á næstunni muni áhrif þess gæta víða um veröld. Kínverska fasteignabólan sé sprungin og alþjóðlegir markaðir komi til með að finna fyrir því.

„Mest allt sparifé almennings liggur í þessum steinkössum, sem oftar en ekki eru óinnréttaðir og óíbúðarhæfir. Vitleysan er ótrúleg. segir Jóhannes í færslu á Facebook. Hann er þeirrar skoðunar að framundan sé líklega hrikalegasta fasteignahrun mannkynssögunnar.

„Fólk keypti íbúðir í mannlausum borgum — ókláraðar og jafnvel áður en hafist var handa við að byggja þær — í þeirri trú að þetta væri besta fáanlega fjárfesting sem völ var á. Svona múgsefjun hefur stundum verið nefnd “meira-fífls-kenningin” — þ.e. að það bíði alltaf einhver enn heimskari en þú í röð til þess að kaupa allt of dýrt húsnæði. Árum saman hefur heimurinn horft upp á furðulega uppbyggingu draugaborga þar sem enginn býr en kínverskur almenningur mokar í peningum. Þetta er ævintýri upp á um 60 trilljónir dollara,“ segir Jóhannes og bætir við:

„Fasteignaverð er byrjað að lækka og bólupeningar upp á trilljónir gufa brátt upp. Alþjóðlegir skuldabréfamarkaðir eiga líka eftir að finna til tevatnsins. Á meðan seðlabankastjórar standa sveittir við prentvélarnar (stafrænar nú til dags) og dæla út fjármagni er ekki hægt að tímasetja hrun. En sögulega allt of mikil skuldaframleiðsla tryggir að það verður hrun. En kannski er það byrjað.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -