Mánudagur 8. desember, 2025
6.8 C
Reykjavik

Jóhann Páll ræður annan lögfræðing í vinnu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jóna Þórey Pétursdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra samkvæmt tilkynningu frá stjórnarráðinu.

„Jóna Þórey er lögmaður og hefur starfað hjá Rétti lögmannsstofu frá árinu 2022 og einkum sinnt málum á sviði umhverfis- og eignaréttar. Hún hefur verið stundakennari í meistaranámi við lagadeild Háskóla Íslands á sviði umhverfisréttar. Þá starfaði Jóna hjá Landsvirkjun sumarið 2021 á sviði Samfélags og umhverfis,“ segir í tilkynningunni.

„Jóna Þórey var forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands 2019-2020 og í skipulagsteymi Loftslagsverkfallanna á Íslandi á sama tíma. Hún var ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda 2020-2022. Jóna hefur setið í ýmsum stjórnum og nefndum og sat m.a. í stjórn Menntasjóðs námsmanna frá árinu 2022-2024 og var varafulltrúi í loftslagsráði 2019-2023.

Jóna Þórey er með BA gráðu og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í mannréttindalögfræði frá Edinborgarháskóla, þaðan sem hún útskrifaðist með láði árið 2022, en þar lagði hún meðal annars áherslu á réttinn til umhverfis.“

Jóna hefur störf í febrúar og verður því annar lögfræðingurinn sem aðstoðar Jóhann Páll en  Lárus M.K. Ólafsson hefur einnig verið ráðinn sem aðstoðarmaður hans. Hann stafaði meðal annars sem yfirlögfræðingur Orkustofnunar.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -