Íbúar Reykhólahrepps fá framvegis frían leikskóla og gjaldfrjálsa tónlistarkennslu barna en sveitarfélagið hefur nú tekið það inn í fjárhagsáætlun að fella niður öll gjöld fyrir námið. Markmið Reykhólahrepps er að bjóða upp á fjölskylduvænt samfélag.
Frá þessu er greint á bb.is þar sem fram kemur að fjárhagsstaða sveitarsjóðsins sé góð og því verði jafnframt boðið upp á akstur fyrir börn í sumarstarfsemi á vegum sveitarfélagsins.
Reykhólahreppur gerir ráð fyrir því að leikskólagjöld verið felld niður að fullu og verður næst ráðist í það að styðja atvinnuþróun í sveitarfélaginu.

