Sunnudagur 10. maí, 2026
5.8 C
Reykjavik

Hnífamaðurinn í þriggja vikna gæsluvarðhald: Fórnarlambið með lífshættulega áverka

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Karlmaður var handtekinn vegna hnífstunguárásar í miðbæ Reykjavíkur í gærmorgun, föstudaginn langa, og hefur verið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald.

Árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn Prikið. RÚV greinir frá málinu.

Ævar Pálmi Pálmason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við RÚV í gær að rannsókn málsins miðaði vel og að lögregla hafi verið fljót að ná utan um það.

Árásarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. maí. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta við fréttastofu RÚV. Er ákvörðunin um gæsluvarðhald yfir manninum sögð vera tekin vegna rannsóknarhagsmuna í málinu. Enn liggur ekki fyrir hvort úrskurðurinn um gæsluvarðhald hafi þegar verið kærður til Landsréttar.

Að sögn voru tveir menn handteknir í tengslum við árásina en hinn maðurinn var þó ekki úrskurðaður í gæsluvarðhald. Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku hjá lögreglu.

Sá sem varð fyrir stunguárásinni er sagður hafa hlotið lífshættulega áverka. Hann var strax fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir aðgerð. Ekki er vitað um líðan mannsins.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -