Hjörtur Þórarinsson, fyrrverandi skólastjóri, er látinn 97 ára að aldri en mbl.is greindi frá andlátinu.
Hjörtur fæddist á Miðhúsum í Reykhólahreppi en flutti að Reykhólum 12 ára gamall en hann var sonur Þórarins Árnasonar og Steinunnar Hjálmarsdóttur.
Hjörtur lauk kennara- og söngkennaranámi árið 1948 og íþróttakennaranámi ári síðar. Hann kenndi bæði á grunn- og framhaldsskólastigi um allt land frá 1949 til 1980 og var einnig skólastjóri á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði 1961-78. Árið 1980 tók Hjörtur svo við starfi sem framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Hann var virkur í félagsstörfum og starfaði meðal annars í Frímúrarareglunni, söng í ýmsum kórum og var formaður Félags eldri borgara á Selfossi frá 1999 til 2013.
Hjörtur lætur eftir sig eina dóttur.
Hjörtur er fallinn frá

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
