„Takk fyrir ókunnugi maður,“ segir Heiða nokkur, íbúi í Langholtshverfi, sem langar til að koma þakklætiskveðju sinni til manns sem hjálpaði dóttur hennar í Álfheimabúðinni í gær. Þangað hafði stúlkan unga komið til að kaupa glaðning fyrir foreldra sína en átti ekki nægan pening sjálf.
Heiða er manninum afar þakklát en hún lýsir atvikinu í hópi hverfisbúa á Facebook:
„Takk fyrir ókunnugi maður með því að greiða fyrir hana mismuninn. Hún fór út í búð með eigin pening til að kaupa glaðning fyrir okkur foreldrana. Í staðinn ákváðum við mæðgur í sameiningu að kaupa fyrir þig sanna gjöf hjá Unicef, við vonum að hún gleðji,“ segir Heiða.
Fjölmargir hverfisbúa gleðjast eðlilega við þessa frásögn Heiðu og hið yndislega góðverk ókunnuga mannsins um hátíðirnar. Sabine er ein þeirra sem gladdist. „Yndislegt,“ segir hún.
Ásrún er glöð yfir góðmennskunni. „Það er til fullt af góðu fólki,“ segir Ásrún. Og Kristín nokkur er líka kát vegna góðverka. „Æi þetta gerði ég í sumar akkúrat í Álfheimabúðinni þegar ein var ekki með nóg á kortinu sínu til að kaupa köku handa vinkonu sinni og líka kisu nammi. Það var gaman,“ segir Kristín.

